Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 04. nóvember 2019 13:00
Magnús Már Einarsson
Real Madrid ætlar að bjóða Bale og pening fyrir Sterling
Raheem Sterling.
Raheem Sterling.
Mynd: Getty Images
Real Madrid er tilbúið að borga 70 milljónir punda og láta Manchester City fá Gareth Bale í skiptum fyrir Raheem Sterling.

Sky Sports segir frá þessu í dag en forráðamenn Real Madrid mættu á landsleiki Englands í síðasta mánuði til að fylgjast með Sterling.

Umboðsmenn Sterling funduðu með framkvæmdastjóra Real Madrid í sumar en leikmaðurinn hefur verið lengi á óskalista spænsku risanna.

Real Madrid ætlar að reyna að sannfæra City um að taka Bale og pening í skiptum fyrir Sterling.

Pep Guardiola, stjóri Manchester City, ku þó hafa takmarkaðan áhuga á að fá hinn þrítuga Bale til félagsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner