Heimild: Íslendingavaktin
Viðar Örn Kjartansson var í fremstu víglínu hjá Rubin Kazan sem gerði markalaust jafntefli á útivelli gegn Krylia Sovetov Samara í rússnesku úrvalsdeildinni í dag.
Rubin Kazan er í 11. sæti, tveimur stigum frá fallsvæðinu, þegar fimmtán umferðum er lokið.
Rubin Kazan er í 11. sæti, tveimur stigum frá fallsvæðinu, þegar fimmtán umferðum er lokið.
Fram kemur á Íslendingavaktinni að Viðar hafi fengið nokkur góð færi í leiknum.
Íslenski sóknarmaðurinn hefur aðeins skorað eitt mark í 13 deildarleikjum á leiktíðinni. Eina markið kom í lok júlímánaðar og því rúmir þrír mánuðir frá síðasta marki.
Viðar gekk til liðs við Rubin Kazan um mitt ár frá Rostov á lánssamningi sem gildir út leiktíðina, en hann lék fyrri hluta árs með Hammarby þar sem hann skoraði 7 mörk í 15 deildarleikjum í sænsku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir