mán 04. nóvember 2019 15:30
Magnús Már Einarsson
„Það versta sem ég hef séð í fótbolta"
Andre Gomes verður fyrir meiðslunum í gær.
Andre Gomes verður fyrir meiðslunum í gær.
Mynd: Getty Images
„Þetta var það versta sem ég hef séð í fótbolta," sagði stuðningsmaður Everton við The Athletic þegar hann ræddi meiðsli Andre Gomes í leiknum gegn Tottenham í gær.

Gomes ökklabrotnaði á skelfilegan hátt og leikmenn sem sáu fótinn á Gomes eftir meiðslin voru ekki lengi að líta undan. Son-Heung Min fékk rauða spjaldið fyrir að brjóta á Gomes og hann brast í grát þegar hann sá meiðslin.

Nálægir áhorfendur voru einnig í áfalli enda sáu þeir meiðslin mjög vel.

„Ég gat ekki hætt að horfa á andlitið á aumingja manninum. Hann var öskrandi af sársauka og ég sá fótinn hans. Ég hélt að það myndi líða yfir hann. Ég fann fyrir köldum svita," sagði annar stuðningsmaður Everton.

„Þetta var of mikið fyrir mig. Ég yfirgaf sætið mitt og fór aftur inn. Það hlýtur að hafa litið út eins og ég væri veikur því að sjúkraflutningamaður kom spjallaði við mig. Þetta var bara skelfilegt."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner