Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mán 04. nóvember 2019 10:34
Magnús Már Einarsson
Tekur Ten Hag við Bayern næsta sumar?
Erik Ten Hag.
Erik Ten Hag.
Mynd: Getty Images
Bayern Munchen vill fá Erik ten Hag, þjálfara Ajax, í þjálfarastól sinn eftir að Niko Kovac var rekinn í gær.

Sky í Þýskalandi segir frá því að Bayern hafi nú þegar haft samband við Ten Hag en hins vegar þyki ljóst að hann sé ekki tilbúinn að yfirgefa Ajax fyrr en næsta sumar.

Ten Hag hefur gert magnaða hluti síðan hann tók við Ajax árið 2017 en á síðasta tímabili fór liðið alla leið í undanúrslit Meistaradeildarinnar.

Ten Hag er samningsbundinn Ajax til 2022 og hann ku ekki tilbúinn að stökkva strax til Bayern.

Kovac var rekinn frá Bayern í gær í kjölfarið á 5-1 tapi gegn Eintracht Frankfurt um helgina.
Athugasemdir
banner
banner
banner