Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mán 04. nóvember 2019 18:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Vardy valinn leikmaður október mánaðar
Vardy ásamt Tielemans og Ayoze Perez.
Vardy ásamt Tielemans og Ayoze Perez.
Mynd: Getty Images
Jamie Vardy var í dag útnefndur leikmaður mánaðarins fyrir október mánuð. Vardy var valinn af áhorfendum deildarinnar sá besti í síðasta mánuði.

Vardy skoraði fjögur mörk í mánuðinum og er markahæsti leikmaður deildarinnar um þessar mundir.

Vardy sigraði í samkeppni við Adama Traore hjá Wolves, Christian Pulisic hjá Chelsea og Jack Grealish hjá Aston Villa. Þá voru David Silva hjá Man City og Ricardo Perreira, samherji Vardy hjá Leicester einnig tilnefndir.

Vardy fékk 40% atkvæða í kosningunni. Hann og samherji hans, Youri Tielemans, voru einnig tilnefndir sem EA Sports leikmaður mánaðarins sem ekki hefur verið valinn þegar þetta er skrifað.
Athugasemdir
banner
banner