Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 04. nóvember 2022 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Jannik og Delphin framlengja hjá Fram
Jannik Pohl
Jannik Pohl
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Danirnir Jannik Pohl og Delphin Tshiembe munu taka slaginn með Fram næsta sumar í Bestu deildinni en þeir komu til liðsins fyrir tímabilið í ár.


Tshiembe gerði samning út næsta tímabil en Pohl gerði gott betur og skrifaði undir tveggja ára samning. Pohl lék 21 leik í sumar og skoraði 9 mörk. Delphin lék 23 leiki og skoraði eitt mark

"Báðir leikmenn hafa vaxið gríðarlega vel þegar leið á tímabilið, Jannik er kominn á fullt skrið eftir meiðslahrjáð tímabil síðasta vetur og þrátt fyrir góðan seinni hluta þá á hann ennþá mikið inni. Delphin kemur með mikla reynslu og mun vonandi vaxa enn frekar." segir Agnar Þór Hilmarsson formaður knd. Fram.

Fram virðist ætla halda kjarnanum og bæta ofan á flottann árangur á sínu fyrsta tímabili í efstu deild í smá tíma en liðið hafnaði í 9. sæti deildarinnar í sumar.


Athugasemdir
banner
banner