Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 04. nóvember 2022 19:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ungstirni Man Utd nýtur þess að horfa á Thiago spila fótbolta
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Zidane Iqbal 19 ára gamall leikmaður Manchester United nefnir Thiago, miðjumann Liverpool einn af leikmönnunum sem hann nýtur þess að horfa á spila fótbolta.


Zidane kom inn á sem varamaður í sínum fyrsta leik gegn Young Boys í Meistaradeildinni á síðustu leiktíð en hann hefur nokkrum sinnum verið á bekknum í deild og Evrópudeildinni á þessari leiktíð.

„Þegar ég var ungur var pabbi minn oft að horfa á Youtube myndbönd af Zinedine Zidane heima. Núna lít ég upp til Frenkie de Jong, hann er frábær leikmaður," sagði Iqbal.

„Einnig Thiago hjá Liverpool, ég veit að hann spilar með Liverpool en þú getur samt borið virðingu fyrir annnari manneskju og hvernig hann spilar, það er magnað að fylgjast með honum."


Athugasemdir
banner
banner
banner