Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 05. janúar 2020 18:27
Ívan Guðjón Baldursson
Kjarnafæðismót kvenna: Auðvelt fyrir Þór/KA
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Þór/KA 4 - 0 Völsungur
1-0 Maria Catharina Gros ('14)
2-0 Karen María Sigurgeirsdóttir ('39)
3-0 Karen María Sigurgeirsdóttir ('44)
4-0 Hulda Ósk Jónsdóttir ('69)

Þór/KA lenti ekki í vandræðum með Völsung er liðin mættust í nágrannaslag á Kjarnafæðismóti kvenna á Akureyri.

María Catharina Gros skoraði fyrsta mark leiksins og gerði Karen María Sigurgeirsdóttir tvennu fyrir leikhlé. Staðan því 3-0 í hálfleik.

Hulda Ósk Jónsdóttir gerði fjórða mark Þórs/KA í síðari hálfleik og þar við sat.

Í gær höfðu Hamrarnir betur gegn Tindastóli 5-0 í fyrsta leik kvennariðilsins. Þór/KA og Hamrarnir eru því jöfn með þrjú stig eftir fyrstu umferð.
Athugasemdir
banner
banner
banner