Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 05. janúar 2020 20:50
Ívan Guðjón Baldursson
Moyes: Úrvalsdeildin í forgangi
Mynd: Getty Images
Hinn 34 ára gamli Pablo Zabaleta skoraði sitt fyrsta mark fyrir West Ham í 0-2 sigri á Gillingham í enska bikarnum í dag.

David Moyes stýrði Hömrunum í annað sinn og skópu lærisveinar hans annan sigur. Moyes var kátur að leikslokum.

„Við vorum ekki góðir í fyrri hálfleik en það gekk vel eftir leikhlé. Gillingham spilaði vel og skapaði vandræði fyrir okkur en strákarnir sýndu mikla seiglu og stóðu uppi sem sigurvegarar," sagði Moyes.

„Gamla West Ham hefði kannski tapað þessum leik en við erum komnir áfram. Úrvalsdeildin er í forgangi hjá okkur en það væri gaman að komast langt í bikarnum."
Athugasemdir
banner
banner