Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 05. janúar 2020 18:04
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu glæsilegt sigurmark Curtis Jones
Mynd: Getty Images
Hinn 18 ára gamli Curtis Jones gerði eina mark leiksins er varalið Liverpool lagði Everton að velli í enska bikarnum í dag.

Jones skoraði á 71. mínútu með glæsilegu skoti við vítateigslínuna. Hann skrúfaði knöttinn upp í vinkilinn í fjærhorninu að hætti Philippe Coutinho.

Þetta er í annað sinn á rétt rúmum mánuði sem Jürgen Klopp hvílir lykilmenn í nágrannaslagnum gegn Everton og vinnur samt. Hann mætti með sterkara lið til leiks í ensku úrvalsdeildinni í upphafi desember og höfðu lærisveinar hans betur, 5-2.

Laglegt sigurmark Jones er hægt að sjá með að smella hér.
Athugasemdir
banner
banner