Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 05. febrúar 2020 10:30
Magnús Már Einarsson
Klopp sendi skilaboð - Sáttur með ungu strákana
Mynd: Getty Images
Neil Critchley stýrði Liverpool til sigurs gegn Shrewsbury í enska bikarnum í gærkvöldi.

Liverpool stillti upp yngsta byrjunarliði sínu í sögunni en leikmenn aðalliðsins eru í fríi þessa dagana líkt og Jurgen Klopp.

Klopp fylgdist með leiknum í gær og sendi skilaboð til ungu strákana að honum loknum.

„Við fengum skilaboð frá starfsfólkinu og hann (Klopp) var ánægður með frammistöðuna. Við höfum gefið honum leik gegn Chelsea (í næstu umferð) og það er tilhlökkun hjá honum," sagði Critchley.

„Hann gefur okkur skýr skilaboð og trú til að spila Liverpool leiðina. Það er það sem aðalliðið gerir. Þetta eru við, svona spilum við, þetta er það sem við stöndum fyrir og við þurftum að vera tilbúnir í það."
Athugasemdir
banner
banner