Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 05. febrúar 2020 20:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Heimild: RÚV 
Lagerbäck um byrjun Haaland: Þetta er ótrúlegt
Mynd: Getty Images
Erling Braut Haaland hefur komið við sögu í fjórum leikjum hjá Borussia Dortmund. Hann hefur skorað í þeim öllum.

Sjö mörk hefur hann skorað í þremur deildarleikjum og í gær bætti hann við áttunda marki sínu í tapi Dortmund í bikarnum.

Lars Lagerbäck, fyrrum landsliðsþjálfari Íslands, tjáði sig um þessa frábæru byrjun Haaland hjá Dortmund. Lagerbäck þjálfar í dag norska landsliðið og getur því teflt fram Haaland í landsleikjum.

„Þetta er í rauninni ótrúlegt. Það sem hann hefur sýnt er alveg magnað," sagði Lars. „Sérstaklega í ljósi þess hve ungur Haaland er. Hann er ekki með mikla reynslu."

Lars getur einnig nýtt sér Martin Ödegaard í norska liðinu en Martin er að gera það gott hjá Real Sociedad á láni frá Real Madrid.

„Ég hef aldrei séð leikmenn á þessum aldri á pari við Erling og Martin. Þetta er ótrúlegt í ljósi þess hve landið er lítið."
Athugasemdir
banner
banner
banner