mið 05. febrúar 2020 22:44
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mourinho hrósaði sjálfum sér - „Fannst ég gera vel"
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho stýrði Tottenham til sigurs í kvöld í 4. umferð enska bikarsins. Tottenham kom til baka úr stöðunni 1-2 gegn Southampton og skoraði Heung-min Son sigurmarkið úr vítaspyrnu skömmu fyrir leikslok.

„Mér fannst ég gera mjö vel," sagði Mourinho eftir leik við BBC Sport.

„Mér fannst það vegna þess að ég þurfti að stýra liði sem er að ganga í gegnum mikla erfiðleika. Ég skipti úr fimm manna varnarlínu í fjögurra manna um leið og ég gat. Þá kom Dele Alli inn og tengdi liðið saman."

„Strákarnir gáfu allt í leikinn í kvöld og núna erum við komnir áfram í 5. umferð eftir fjóra leiki. Þeir eiga skilið að vera glaðir,"
sagði Mourinho að lokum.
Athugasemdir
banner
banner