mið 05. febrúar 2020 23:15
Aksentije Milisic
Zidane: Er ekki með plan til þess að stöðva Ödegaard
Mynd: Getty Images
Real Madrid mætir Real Sociedad í 8 liða úrslitum spænska bikarsins á morgun. Martin Ödegaard, leikmaður Sociedad er á láni frá Real Madrid en hann hefur þótt standa sig mjög vel á þessu tímabili.

Margir velta því fyrir sér hvort að Real Madrid taki ekki Ödegaard inn í liðið á næsta tímabili og gefi honum tækifæri til þess að sanna sig hjá spænska stórveldinu.

„Ég er ekki búinn að plana það neitt sérstaklega með að stöðva Ödegaard á morgun. Hann er einn af okkar leikmönnum," sagði Zidane.

„Við erum mjög ánægðir með frammistöðu hans hjá Sociedad á þessu tímabili. En á morgun er hann að fara spila gegn okkur og hann mun gera allt til þess að hjálpa þeim að vinna leikinn. Við þurfum að hugsa hvað við ætlum að gera."

Ödegaard hefur skorað 4 mörk í 20 leikjum fyrir Real Sociedad í deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner