Stephen Humphrys er framherji Hearts í Skotlandi. Hann er 25 ára gamall og leikur fyrir félagið á lánssamningi frá Wigan Athletic.
Humphrys, sem er uppalinn hjá Fulham, kom inn í hálfleik er Hearts var 0-1 undir á heimavelli gegn Dundee Utd í skosku deildinni. Hearts náði að snúa stöðunni við í síðari hálfleik og var staðan 2-1 í uppbótartíma þegar gestirnir lögðu allt í sóknina í leit að jöfnunarmarki.
Í stað þess að finna jöfnunarmarkið komust heimamenn í Hearts í skyndisókn. Humphrys hljóp með boltann út úr eigin vítateig og tók eftir að markvörður Dundee var kominn út úr markinu. Hann hljóp að miðjulínunni með andstæðinga á hælunum en tókst að hrista þá af sér áður en hann hleypti af frábæru langskoti með vinstri fæti.
Skotið flaug yfir markvörðinn og í netið og er sérstaklega magnað í ljósi þess að Humphrys er réttfættur.