Enski framherjinn Dominic Calvert-Lewin mun framlengja samning sinn við Everton til ársins 2025 en þetta kemur fram í The Times í dag.
Calvert-Lewin er 22 ára gamall og kom til félagsins árið 2016 frá Sheffield United en hann hefur spilað stóra rullu í liðinu á þessu tímabili.
Hann hefur skorað 15 mörk í 31 leik í öllum keppnum og er alger lykilmaður í liðinu.
Framherjinn mun skrifa undir nýjan samning við Everton á næstu dögum en samningurinn mun gilda til ársins 2025.
Mason Holgate skrifaði undir fimm ára samning við Everton á dögunum.
Everton er í 11. sæti og aðeins fimm stigum frá fimmta sætinu.
Athugasemdir