Danska liðið SönderjyskE er komið í undanúrslit danska bikarsins eftir 2-1 sigur á Randers i kvöld.
Ísak Óli Ólafsson var í byrjunarlið SönderjyskE og lék allan leikinn en Eggert Gunnþór Jónsson kom inná sem varamaður á 87. mínútu.
Emil Frederiksen var hetja SönderjyskE en hann lagði upp fyrra mark liðsins og skoraði svo sigurmarkið á 89. mínútu.
AGF og AaB eru komin í undanúrslit en það kemur í ljós í kvöld hvert fjórða liðið verður en Horsens og Silkeborg berjast um síðasta sætið.
Athugasemdir