Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 05. mars 2020 17:58
Brynjar Ingi Erluson
Juventus fylgist með leikmanni Santos
Kaio Jorge fagnar marki sínu gegn Defensa
Kaio Jorge fagnar marki sínu gegn Defensa
Mynd: Getty Images
Ítalska félagið Juventus hefur mikinn áhuga á því að fá Kaio Jorge, leikmann Santos í Brasilíu, til félagsins í sumar.

Kaio Jorge er 18 ára gamall en hann var í sigurliði U17 ára landsliðsins sem vann HM á síðasta ári. Hann gerði þar fimm mörk í keppninni og skoraði meðal annars í úrslitaleiknum gegn Mexíkó.

Hann er samningsbundinn Santos og hefur vakið áhuga margra öflugustu liða Evrópu.

Hann er með 50 milljón evra riftunarákvæði í samningnum og er ítalska félagið Juventus alvarlega að íhuga að festa kaup á honum í sumar.

Jorge kom við sögu í 21 mínútu í 2-1 sigri á Defensa í Libertadores-bikarnum á dögunum en hann skoraði sigurmark Santos í leiknum.
Athugasemdir
banner
banner