Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, telur að Wayne Rooney geti orðið stjóri félagsins í framtíðinni.
Manchester United mætir Derby í enska bikarnum í kvöld en þar verður Rooney í eldlínunni gegn sínum gömlu félögum.
Auk þess að vera leikmaður hjá Derby þá er Rooney í þjálfaraliðinu hjá stjóranum Phillip Cocu.

„Já," sagði Solskjær aðspurður hvort hann sjái Rooney geta stýrt United í framtíðinni. „Þetta veltur á því hversu mikið þú leggur í starfið og hversu mikið þú vilt þetta því að þetta tekur yfir líf þitt."
„Þetta er næstbesta starfið á eftir því að vera leikmaður. Ég er viss um að margir fyrrum leikmenn og stjórar myndu vilja fá starfið mitt."
Athugasemdir