Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 05. mars 2020 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spánn í dag - Sæti í bikarúrslitum í boði
Bilbao er með 1-0 forystu eftir fyrri leikinn.
Bilbao er með 1-0 forystu eftir fyrri leikinn.
Mynd: Getty Images
Í kvöld, klukkan 20:00, mætast Granada og Athletic Bilbao í síðari leik liðanna í undanúrslitum spænska bikarsins.

Leikurinn fer fram Estadio Nuevo Los Cármenes, heimavelli Granada, og sigurvegarinn mætir Real Sociedad í úrslitum.

Fyrri leikurinn, sem fór fram í Baskalandi, endaði með 1-0 sigri Bilbao þar sem að Iker Muniain, fyrirliði Bilbao, skoraði sigurmarkið undir lok fyrri hálfleiks.

Einvígið er enn opið og það getur allt gerst í þessum leik í kvöld. Í spænsku úrvalsdeildinni er Granada í níunda sæti og Bilbao í tíunda sæti og skilja tvö stig liðin að.

fimmtudagur 5. mars

SPAIN: National cup
20:00 Granada CF - Athletic
Athugasemdir
banner
banner
banner