Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 05. maí 2020 16:31
Elvar Geir Magnússon
Carragher velur ekki Klopp sem stjóra tímabilsins
Chris Wilder hefur gert ótrúlega hluti með Sheffield United.
Chris Wilder hefur gert ótrúlega hluti með Sheffield United.
Mynd: Getty Images
Jamie Carragher segir að ef hann ætti að velja stjóra tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni þá yrði Chris Wilder hjá Sheffield United fyrir valinu,

Carragher, sem lék allan ferilinn fyrir Liverpool, segir að Jurgen Klopp sé númer tvö á sínu blaði. Liverpool var hársbreidd frá því að tryggja sér enska meistaratitilinn þegar keppni var stöðvuð í ensku úrvalsdeildinni vegna heimsfaraldursins.

Sheffield United komst upp úr Championship-deildinni í fyrra en er nú í baráttu um Meistaradeildarsæti.

„Ef Jurgen Klopp landar Englandsmeistaratitlinum til Liverpool er hægt að horfa á hann. En það er rosalegt afrek að koma Sheffield United í deild þeirra bestu, reiknað var með að liðið yrði í fallbaráttu en það er í baráttu um Meistaradeildarsæti," segir Carragher.

„Liðið á leik inni gegn Manchester United og hver veit hvað gerist með Manchester City og Meistaradeildina á næsta tímabili. Sheffield hefur ekki eytt háum fjárhæðum. Á þessum tímapunkti tel ég að Chris Wilder eigi að verða stjóri tímabilsins. Það er ótrúlegt hvað hann hefur gert með liðið."
Athugasemdir
banner
banner