Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   þri 05. maí 2020 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Courtois: Barca á ekki skilið titilinn - Real verið betri
Hinn 27 ára gamli Courtois gekk í raðir Real Madrid eftir HM 2018.
Hinn 27 ára gamli Courtois gekk í raðir Real Madrid eftir HM 2018.
Mynd: Getty Images
Thibaut Courtois, markvörður Real Madrid og belgíska landsliðsins, telur erkifjendurna í Barcelona ekki eiga skilið spænska deildartitilinn ef tímabilið verður ekki klárað.

Börsungar eru með tveggja stiga forystu á Real þegar ellefu umferðir eru eftir af tímabilinu. Courtois telur Barca ekki eiga titilinn skilið útaf innbyrðisviðureignum liðanna.

„Við erum bara tveimur stigum á eftir Barcelona. Það væri ósanngjarnt að stöðva tímabilið og krýna Barca sem meistara," sagði Courtois í sjónvarpsviðtali.

„Á þessu ári höfum við verið betri en Barca. Við gerðum jafntefli og unnum þá. Það munar alltof litlu í toppbaráttunni, þetta er ekki eins og á Englandi þar sem Liverpool er svo gott sem búið að vinna titilinn."

Óljóst er hvort spænska deildartímabilið verði klárað en rúmlega 25 þúsund manns hafa látist vegna kórónuveirunnar þar í landi. Búið er að færa bikarúrslitaleik Athletic Bilbao gegn Real Sociedad til næsta árs.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 31 24 6 1 67 20 +47 78
2 Barcelona 31 21 7 3 62 34 +28 70
3 Girona 31 20 5 6 63 39 +24 65
4 Atletico Madrid 31 19 4 8 59 36 +23 61
5 Athletic 31 16 9 6 51 29 +22 57
6 Real Sociedad 31 13 11 7 45 33 +12 50
7 Valencia 31 13 8 10 34 32 +2 47
8 Betis 31 11 12 8 38 37 +1 45
9 Getafe 31 9 12 10 37 43 -6 39
10 Villarreal 31 10 9 12 49 54 -5 39
11 Osasuna 31 11 6 14 36 44 -8 39
12 Las Palmas 31 10 7 14 29 35 -6 37
13 Sevilla 31 8 10 13 39 44 -5 34
14 Alaves 31 8 8 15 26 38 -12 32
15 Mallorca 31 6 13 12 25 36 -11 31
16 Vallecano 31 6 13 12 25 38 -13 31
17 Celta 31 6 10 15 33 46 -13 28
18 Cadiz 31 4 13 14 21 41 -20 25
19 Granada CF 31 3 8 20 32 60 -28 17
20 Almeria 31 1 11 19 30 62 -32 14
Athugasemdir
banner
banner
banner