Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 05. maí 2020 12:30
Magnús Már Einarsson
FH og Þróttur R. fá styrk fyrir fótboltaæfingar hælisleitanda
Mynd: Getty Images
Í desember síðastliðnum auglýsti KSÍ eftir umsóknum um styrki vegna verkefna sem tengjast flóttafólki og hælisleitendum. Um er að ræða styrk úr sjóði sem Knattspyrnusamband Evrópu setti á laggirnar og aðildarsamböndum UEFA býðst að sækja um styrk úr vegna tilgreindra verkefna.

Knattspyrnusambönd í Evrópu eru þannig hvött til að starfa með samtökum sem starfa að málefnum flóttamanna og hælisleitenda í sínum löndum og stofna til verkefna sem styðja við samfélagslega aðlögun þeirra.

Hægt var að sækja um styrk fyrir ný verkefni, eða verkefni sem þegar eru hafin og gat upphæð styrksins numið allt að 50.000 evrum, eða tæpum sjö milljónum króna. Valnefnd UEFA, sem skipuð er fulltrúum UEFA og ýmsum sérfræðingum í málefnum flóttafólks og hælisleitenda, fór yfir umsóknirnar og valdi sex verkefni sem hljóta styrk á árinu 2020. Umsóknir til UEFA komu frá 16 aðildarsamböndum.

Alls barst tæplega tugur umsókna til KSÍ vegna innlendra verkefna og var ákveðið að sækja um til UEFA vegna verkefna á vegum FH og Þróttar R. sem ganga út á að bjóða hælisleitendum og flóttafólki á knattspyrnuæfingar í hverri viku undir leiðsögn menntaðra þjálfara og á aðra viðburði á vegum félaganna.

Markmiðið er að nota knattspyrnustarfið og aðra starfsemi félaganna til að styðja við aðlögun flóttafólks og hælisleitenda að íslensku samfélagi. Skemmst er frá því að segja að verkefni FH og Þróttar R. eru á meðal þeirra verkefna sem urðu fyrir valinu hjá valnefnd UEFA. Verkefnin, sem eru opin öllum aldurshópum og báðum kynjum, munu hefjast í sumar og standa fram eftir hausti og vonast bæði félög eftir því að verkefnin verði árleg.
Af heimasíðu KSÍ.
Athugasemdir
banner
banner
banner