Mundo Deportivo segir að spænsku risaliðin Barcelona og Real Madrid hafi áhuga á hinum sextán ára Herculano Nabian.
Um er að ræða stóran og stæðilegan portúgalskan leikmann en hann er þegar orðinn 1,82 metrar.
Honum hefur verið líkt við Romelu Lukaku.
Um er að ræða stóran og stæðilegan portúgalskan leikmann en hann er þegar orðinn 1,82 metrar.
Honum hefur verið líkt við Romelu Lukaku.
Íþróttafréttamaðurinn Roger Torello segir að búast má við harðri baráttu tveggja sigursælustu liða Spánar um þennan áhugaverða leikmann.
Nabian er hjá VSC Juvenis í Portúgal en Sporting Lissabon, Porto og Benfica vilja auðvitað öll fá hann í sínar raðir.
Athugasemdir