Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   fim 05. maí 2022 22:10
Þorsteinn Haukur Harðarson
Brynjar Björn: Skrítin byrjun á leiknum
Lengjudeildin
Brynjar Björn Gunnarsson
Brynjar Björn Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

"Þetta var skrítin byrjun. Það komu tvö skot á markið og við vorum lentir 2-0 undir," sagði Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari HK, eftir tapið gegn Selfossi í kvöld.


Lestu um leikinn: HK 2 -  3 Selfoss

"Við gerðum vel að jafna leikinn fljótt og þá var þetta leikur aftur og nóg eftir. Við sóttum meira í seinni hálfleik og fengum ágætis möguleika til að skora en við nýttum þau tækifæri ekki nógu vel."

HK-ingar lentu í áföllum í leiknum en þeir Valgeir Valgeirsson, Arnþór Ari og Ásgeir Marteinsson og Bjarni Gunnarsson fóru allir meiddir af velli í leiknum. 

"Ég hef ekki áhyggjur. Það er alltaf vont að missa menn útaf. Ég held þetta séu ekki þannig meiðsli að þeir verði lengi frá. Þetta eru 2-3 dagar frá og það er vika í næsta leik. En vissulega er óþægilegt að þurfa að hræra svona mikið í liðinu."

HK hefur samið við brasilíska miðvörðinn Bruna Soaressem bíður eftir leikheimild með liðinu. Brynjar telur líklegt að fleiri leikmenn bætist við áður en félagaskiptaglugginn lokar.

"Já það er alveg möguleiki á að við bætum við 1-2 leikmönnum. Maður er alltaf að leita að góðum leikmönnum og ef það kemur eitthvað upp á borðið skoðum við það."


Athugasemdir
banner