Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 05. maí 2022 12:30
Elvar Geir Magnússon
Carragher viss um að Liverpool vinni Meistaradeildina
Jamie Carragher.
Jamie Carragher.
Mynd: Getty Images
Liverpool mun mæta Spánarmeisturum Real Madrid í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu þann 28. maí á Stade de France í París.

Real Madrid komst í úrslitaleikinn með því að vinna magnaðan endurkomusigur á Manchester City í gær. Jamie Carragher, fyrrum leikmaður Liverpool, var sérfræðingur CBS yfir leiknum.

Eftir leikinn var hann minntur á ummæli sín fyrr á leiktíðinni. Þá sagði hann:

„Þetta Real Madrid lið á enga möguleika á því að vinna Meistaradeildina. Algjörlega engan möguleika á því að vinna keppnina," sagði Carragher þegar Real Madrid var að spila við PSG í 16-liða úrslitum.

Það var hlegið í sjónvarpssal þegar þessi ummæli voru rifjuð upp og Micah Richards sagði: „Þú verður stressaður yfir úrslitaleiknum!"

En Carragher svaraði: „Ég yrði miklu stressaðri ef þetta væri Manchester City. Ég er viss um að Liverpool vinni þennan leik."
Athugasemdir
banner
banner