Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 05. maí 2022 18:12
Ívan Guðjón Baldursson
Danmörk: OB í úrslit eftir þægilegan sigur
Mynd: Getty Images

OB 3 - 0 SönderjyskE  (5-1 samanlagt)
1-0 I. Jebali ('2)
2-0 E. Sabbi ('22)
3-0 M. Frökjaer ('45)


Aron Elís Þrándarson var ekki í hóp hjá OB sem kom sér í úrslitaleik danska bikarsins með góðum sigri á SönderjyskE. Atli Barkarson spilaði síðustu 25 mínúturnar í liði gestanna.

Leikurinn var spilaður í Óðinsvéum eftir að OB hafði unnið fyrri leikinn á útivelli.

Þetta reyndist þægilegur 3-0 sigur þar sem öll mörkin komu í fyrri hálfleik. 

OB mætir Elíasi Rafni Ólafssyni og félögum í FC Midtjylland í úrslitaleik 26. maí. Elías Rafn er meiddur þessa dagana og verður líklega ekki kominn til baka í tæka tíð fyrir úrslitaleikinn.


Athugasemdir
banner
banner
banner