Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 05. maí 2022 13:30
Elvar Geir Magnússon
Frágengið að Mazraoui fer til Bayern
Mynd: EPA
Bild greinir frá því að frágengið sé að bakvörðurinn Noussair Mazraoui gangi í raðir Bayern München.

Hann átti tvo fundi með Julian Nagelsmann, stjóra félagsins, og framkvæmdastjóranum Oliver Kahn í mars.

Mazraoui er 24 ára hægri bakvörður sem hefur allan aðalliðsferil sinn spilað fyrir Ajax en hann kom upp úr unglingastarfi félagsins.

Hann hefur klárað fyrri hluta læknisskoðunnar og hefur gert munnlegt samkomulag um samning við Þýskalandsmeistarana.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner