Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 05. maí 2022 19:20
Ívan Guðjón Baldursson
Gummi Ben vakti athygli með lýsingunni í gær
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðmundur Benediktsson er meðal þekktari lýsenda í fótboltaheiminum eftir ævintýri Íslands á EM 2016.


Gummi Ben lýsti leikjunum og vöktu viðbrögð hans og raddbeiting heimsathygli þegar Ísland tryggði sér fyrst sæti í útsláttarkeppninni og svo í 8-liða úrslitum með sigri gegn stórveldi Englands.

Gummi var að lýsa undanúrslitaleik Meistaradeildarinnar í gærkvöldi þegar Real Madrid átti magnaða endurkomu í uppbótartíma gegn Manchester City og endaði á að tryggja sér sigur í framlengingu.

Gummi lifði sig inn í leikinn eins og vanalega og gjörsamlega missti vitið þegar Real skoraði tvö með örstuttu millibili til að koma leiknum í framlengingu.

Myndband af þessu hefur vakið mikla athygli í netheimum þó áhorfendur skilji líklegast ekki stakt orð í íslensku.


Athugasemdir
banner
banner