Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér að áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
Ómar Ingi: Eðlilega verður róðurinn þyngri
Siggi Höskulds: Áttum að skora miklu fleiri mörk
Mikael: Ef menn vilja vera áfram í KFA þurfa menn að horfa á þennan leik
Eyþór: Talað um báða titlana frá fyrsta samtali
Marc McAusland: Lífið er gott í ÍR
   fim 05. maí 2022 22:10
Kjartan Leifur Sigurðsson
Kristrún Lilja: Við sýndum það að allir þurfa að óttast okkur
Lengjudeildin
Kristrún í leiknum í dag.
Kristrún í leiknum í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Fyrstu viðbrögð eru vonbrigði. Hrikalega sárt að fá á sig mark í uppbótartíma en ég er hrikaleg stolt af mínum stelpum. Vorum fullar af sjálfstrausti og spiluðum flottan fótbolta og við áttum sannarlega eitthvað skilið úr þessum leik." Þetta segir Kristrún Lilja Daðadóttir eftir grátlegt 3-2 tap gegn Víkingum í fyrstu umferð Lengjudeildar kvenna.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 3 -  2 Augnablik

„Að skora fyrsta markið svona snemma var geggjað og gaf okkur sjálfstraust að halda áfram og þetta var mjög flott" Segir Kristrún þegar hún er spurð um hvað henni fannst um fyrsta mark Augnabliks sem kom á upphafssekúndum leiksins.

Augnablik voru hættulegar í skyndisóknum í dag og Kristrún hafði þetta um það að segja: „Við vorum aðeins búnar að reyna að vera lesa aðeins inn á þær en vissum líka að liðið hjá þeim er breytt og nýjir leikmenn komnir inn en við vissum af möguleikum sem við gátum nýtt okkur"

Víkingur skoraði sigurmarkið í uppbótartíma og Kristrún hafði þetta að segja um það mark: „Þetta var ógeðslega fúlt en við tökum þessa frammistöðu með okkur út í mótið. Okkur er spáð neðsta sæti og við ætlum ekki að láta þetta vera neitt auðvelt fyrir liðin sem mæta okkur en við erum að læra og þurfum að læra hratt en við sýndum það í dag að allir þurfa að óttast okkur."

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner