Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 05. maí 2022 12:00
Elvar Geir Magnússon
Margir stuðningsmenn Real voru farnir þegar endurkoman átti sér stað
Fyrir utan Santiago Bernabeu.
Fyrir utan Santiago Bernabeu.
Mynd: Twitter
Margir héldu að Manchester City væri búið að tryggja sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildarinnar þegar rosaleg endurkoma Real Madrd átti sér stað í blálok venjulegs leiktíma á Santiago Bernabeu vellinum.

Margir sjónvarpsáhorfendur voru búnir að slökkva á tækinu, sportbarir voru byrjaðir að tæmast og margir stuðningsmenn á vellinum voru búnir að yfirgefa leikvanginn.

Myndir hafa sést af fjölda stuðningsmanna sem voru búnir að yfirgefa sæti sín og voru fyrir utan leikvanginn þegar endurkoman hófst. Af öryggisástæðum fengu þeir ekki að fara aftur inn.

Fólk var fyrir utan leikvanginn að horfa á framlenginguna í símanum sínum eftir að hafa farið of snemma.

Hér að neðan má sjá frá fögnuði leikmanna Real Madrid í klefanum.


Athugasemdir
banner
banner
banner