Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fim 05. maí 2022 20:59
Ívan Guðjón Baldursson
Sambandsdeildin: Roma aðeins of stór biti fyrir Leicester
Feyenoord í úrslit
Mynd: EPA

Jose Mourinho og lærisveinar hans í Roma eru komnir í úrslitaleik Sambandsdeildarinnar eftir góðan heimasigur gegn Leicester í tíðindalitlum leik.


Tammy Abraham gerði eina mark leiksins á elleftu mínútu og eftir það ríkti mikið jafnræði á vellinum. Lærisveinar Jose Mourinho vörðust vel gegn Leicester og áttu gestirnir frá Englandi ekki mikið af svörum.

Leicester tókst ekki að jafna og Roma er komið í úrslit eftir að liðin gerðu 1-1 jafntefli í fyrri leiknum á Englandi.

Roma mætir Feyenoord í úrslitum eftir að Hollendingarnir gerðu markalaust jafntefli við Marseille.

Feyenoord vann fyrri leikinn 3-2 á heimavelli og geta þakkað ísraelska markverði sínum Ofir Marciano að hafa haldið hreinu í Frakklandi í kvöld.

Roma 1 - 0 Leicester (2-1 samanlagt)
1-0 Tammy Abraham ('11)

Marseille 0 - 0 Feyenoord (2-3 samanlagt)


Athugasemdir
banner
banner
banner