Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fim 05. maí 2022 20:03
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu atvikin: Cresswell fékk rautt - Magnaðir stuðningsmenn
Mynd: Getty Images

Útlitið er ekki bjart fyrir West Ham sem er 1-0 undir gegn Eintracht Frankfurt þegar seinni hálfleikur fer að hefjast í undanúrslitum Evrópudeildarinnar.


Frankfurt er 3-1 yfir í heildina eftir 2-1 sigur í fyrri leiknum í London og er brekkan því ansi brött fyrir Hamrana, sem eru aðeins tíu eftir á vellinum.

Þeir misstu varnarmanninn Aaron Cresswell af velli með beint rautt spjald þegar hann braut af sér sem aftasti varnarmaður snemma leiks.

Atvikið má sjá hér fyrir neðan en dómarinn gaf Cresswell fyrst gult spjald en breytti um lit eftir inngrip frá VAR herberginu.

Þá má einnig sjá magnaða stuðningsmenn Frankfurt sem voru með flotta sýningu fyrir upphafsflautið.

Sjáðu rauða spjald Cresswell.


Athugasemdir
banner
banner
banner