fim 05. maí 2022 14:00
Elvar Geir Magnússon
Ungstirnið Miretti fær fleiri mínútur með Juventus
Fabio Miretti er 18 ára.
Fabio Miretti er 18 ára.
Mynd: Getty Images
Juventus hefur tryggt sér Meistaradeildarsæti fyrir næsta tímabil en liðið mætir Genoa á morgun. Bæði Juventus og Inter spila deildarleik á morgun en liðin mætast svo í úrslitum ítalska bikarsins í Rómarborg í næstu viku.

„Við þurfum að safna eins mörgum stigum og við getum. Það er öruggt að við endum í topp fjórum og það er stutt í bikarúrslitaleik. Við þurfum góða frammistöðu á morgun. Ég stilli upp mjög sterku liði," sagði Allegri, stjóri Juventus, á fréttamannafundi.

„Danilo mun hvíla, Luca Pellegrini er að glíma við ökklameiðsli, Juan Cuadrado er kominn aftur og einnig Mattia De Sciglio. Hann verður þó ekki með í úrslitaleiknum vegna leikbanns."

Hann var spurður að því hvort ungstirnið Fabio Miretti, 18 ára miðjumaður, muni spila leikinn á morgun.

„Hann spilar á morgun. Ég veit ekki í hvaða stöðu en hann spilar," segir Allegri en Miretti fékk sitt fyrsta tækifæri með aðalliðinu fyrr á tímabilinu og byrjaði sinn fyrsta leik á sunnudaginn gegn Venezia.

„Því meira sem þeir spila því meira bæta þeir sig, eins og með öll störf. Þegar þið hófuð ykkar blaðamannaferil þá voruð þið ekki eins góðir og þið eruð núna. Það er leið sem þarf að fara til að öðlast reynslu og bæta sig."


Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 29 24 4 1 71 14 +57 76
2 Milan 29 19 5 5 55 33 +22 62
3 Juventus 29 17 8 4 44 23 +21 59
4 Bologna 29 15 9 5 42 25 +17 54
5 Roma 29 15 6 8 55 35 +20 51
6 Atalanta 28 14 5 9 51 32 +19 47
7 Napoli 29 12 9 8 44 33 +11 45
8 Fiorentina 28 12 7 9 41 32 +9 43
9 Lazio 29 13 4 12 36 33 +3 43
10 Monza 29 11 9 9 32 36 -4 42
11 Torino 29 10 11 8 28 26 +2 41
12 Genoa 29 8 10 11 31 36 -5 34
13 Lecce 29 6 10 13 26 45 -19 28
14 Udinese 29 4 15 10 28 44 -16 27
15 Verona 29 6 8 15 26 39 -13 26
16 Cagliari 29 6 8 15 29 50 -21 26
17 Empoli 29 6 7 16 22 43 -21 25
18 Frosinone 29 6 6 17 37 60 -23 24
19 Sassuolo 29 6 5 18 33 56 -23 23
20 Salernitana 29 2 8 19 23 59 -36 14
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner