Cristiano Ronaldo var magnaður þegar Real Madrid vann Juventus í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á laugardag. Ronaldo skoraði tvö mörk í frekar þægilegum 4-1 sigri Í Cardiff.
Ronaldo ákvað að breyta aðeins til eftir sigurinn , en hann fór í klippingu. Greiðslan hjá honum núna er öðruvísi en áður, svo ekki sé meira sagt. Hann lét raka mest hárið af sér.
Ronaldo ákvað að breyta aðeins til eftir sigurinn , en hann fór í klippingu. Greiðslan hjá honum núna er öðruvísi en áður, svo ekki sé meira sagt. Hann lét raka mest hárið af sér.
Hann hefur núna útskýrt af hverju hann gerði það.
„Þetta var loforð. Ég hafði lofað þessu ef við myndum vinna Meistaradeildina og ef ég myndi skora. Ég gerði þetta og ég rakaði mig sjálfur," sagði Ronaldo hress.
„Ég reyni alltaf að gera mitt fyrir liðið og hlutirnir eru að ganga vel. Sannleikurinn er sá að tölurnar ljúga ekki."
Lífið leikur við Ronaldo þessa daganna, en í dag var greint frá því að hann yrði framan á FIFA 18 tölvuleiknum.
#FIFA18. It’s My Time. https://t.co/eTNXUAAHqm @EASPORTSFIFA pic.twitter.com/nZRDTKyKV7
— Cristiano Ronaldo (@Cristiano) June 5, 2017
Athugasemdir