Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   lau 05. júní 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Chelsea útilokar ekki að selja Ziyech - Áhugi frá Ítalíu
Hakim Ziyech.
Hakim Ziyech.
Mynd: EPA
Hakim Ziyech gekk í raðir Chelsea frá Ajax fyrir um ári síðan. Núna er hann orðaður við Napoli á Ítalíu.

Ziyech náði ekki að finna stöðugleika á sínu fyrsta tímabili í London og Napoli hefur mikinn áhuga á að kaupa hann að sögn CalcioMercato á Ítalíu.

Ef annað hvort Lorenzo Insigne eða Hirving Lozano fer frá Napoli í sumar, þá sjá þeir Ziyech sem fullkominn arftaka.

Ziyech getur spilað í báðum kantstöðum og einnig á miðju vallarins.

Það er ekki enn komið tilboð í hann en að því er kemur fram á Football.london þá hefur Chelsea ekki útilokað að selja hann, þrátt fyrir að hann sé aðeins búinn að vera í eitt ár hjá félaginu.

AC Milan er einnig sagt hafa áhuga á Ziyech.
Athugasemdir
banner
banner
banner