Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 05. júní 2021 15:10
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Southgate tekur ákvörðun eftir leikinn á morgun
Mynd: Getty Images
England mætir Rúmeníu í síðasta æfingaleik liðsins fyrir EM á morgun. Gareth Southgate var til viðtals hjá Sky Sports og ræddi meðal annars meiðsli Trent Alexander-Arnold.

Southgate segir að meiðsli Trent séu mikil vonbrigði fyrir Trent sjálfan og ekki síst liðið. En hann verður að öllum líkindum til í slaginn á undirbúningstímabilinu fyrir næsta tímabil hjá Liverpool.

Engin ákvörðun hefur verið tekin um hver muni taka sæti hans í landsliðinu á EM en Southgate mun skoða þann möguleika eftir leikinn gegn Rúmeníu á morgun.

Englendingar eru með Króötum, Skotum og Tékkum í riðli á EM og fyrsti leikur þeirra er gegn Króötum sunnudaginn 13. júní.
Athugasemdir
banner
banner