Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 05. júní 2022 15:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Bale: Það vilja allir spila á HM
Mynd: EPA

Gareth Bale er í byrjunarliði Wales sem mætir Úkraínu kl 16 í leik um sæti á HM í Katar. Þetta er fyrsti leikurinn hans í tæpa tvo mánuði.


Wales hefur ekki komist á HM síðan árið 1958 en allir eru harðákveðnir í að komast á mótið í ár.

„Við erum allir harðákveðnir í að komast á HM, við erum í dauðafæri, einn leikur eftir. Við vitum að þetta verður erfiður leikur gegn góðu liði. Við berum mikla virðingu fyrir þeim," sagði Bale.

„Það vilja allir spila á HM, ég er ekkert öðruvísi með það. Allir leikmenn, þjálfarar og aðrir tengdir liðinu eru að vinna að einu markmiði og það er að vinna þennan leik,"

Framtíð Bale er í lausu lofti en hann yfirgefur Real Madrid í sumar. Hafa úrslit leiksins í dag áhrif á framtíð hans í fótbolta?

„Eiginlega ekki, eins og ég hef sagt áður þá er ég ekki að spá í framtíðinni, allur fókus er á leiknum," sagði Bale.


Athugasemdir
banner
banner
banner