Steven Bergwijn leikmaður Tottenham vill ólmur fara frá félaginu í sumar, þetta staðfesti hann í viðtali við ESPN.
Bergwijn er ósáttur með spiltímann sinn hjá Tottenham en hann lék 25 leiki í deildinni á síðustu leiktíð, þar af kom hann 21. sinni inn á sem varamaður.
„Þetta er erfitt fyrir mig. Ég spila vel með landsliðinu en þegar ég kem aftur til félagsins er ekki litið á mig. Ég þarf að finna lausn, ég gæti farið. Ajax? Ég held öllum möguleikum opnum," sagði Bergwijn.
Bergwijn hefur skorað fimm mörk í síðustu fjórum landsleikjum fyrir Holland.
Athugasemdir