Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 05. júní 2022 11:45
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Óttar Magnús lagði upp - Oakland á flugi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óttar Magnús Karlsson hefur farið gríðarlega vel af stað með Oakland Roots í Bandaríkjunum.


Liðið byrjaði tímabilið ekki vel en það var án sigurs í sex fyrstu leikjunum. Liðið er nú án taps í síðustu sex leikjunum. Óttar hefur skorað 10 mörk í 14 leikjum.

Oakland heimsótti Monterey Bay í nótt og sigraði 2-0. Óttar Magnús skoraði ekki en hann lagði upp sitt fyrsta mark í uppbótartíma.

Oakland Roots var stofnað árið 2018 en Óttar skoraði tvö mörk í síðustu umferð sem varð til þess að hann varð markahæsti leikmaður liðsins í sögunni.


Athugasemdir
banner
banner
banner