Ítalska félagið Sassuolo hafnaði 35 milljón punda tilboði Arsenal í Gianluca Scamacca á dögunum en þetta segir tyrkneski blaðamaðurinn Ekrem Konur.
Scamacca er 23 ára gamall framherji og er leikstíll hans sagður svipa til sænska framherjans Zlatan Ibrahimovic.
Hann er 195 sentímetrar á hæð og afar lunkinn með boltann en hann skoraði 16 mörk í ítölsku deildinni á nýafstöðnu tímabili og myndaði þar frábært teymi með Giacomo Raspadori og Domenico Berardi.
Ítalska blaðið Gazzetta dello Sport greindi frá því á dögunum að Arsenal væri búið að leggja fram tilboð í Scamacca en nú segir Ekrem Konur að Sassuolo hafi hafnað því boði sem hljóðaði upp á 35 milljónir punda.
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, er í leit að framherja en hann Alexandre Lacazette er farinn frá félaginu og þá fór Pierre-Emerick Aubameyang til Barcelona í janúar.
Athugasemdir