Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 05. júní 2022 10:00
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu markið: Glæsileg aukaspyrna hjá einum efnilegasta leikmanni Man Utd
Alejandro Garnacho
Alejandro Garnacho
Mynd: Getty Images
Argentínski táningurinn Alejandro Garnacho skoraði stórglæsilegt aukaspyrnumark er U20 ára lið Argentínu tapaði fyrir Frakklandi, 6-2, í Toulon-mótinu í gær.

Garnacho, sem er 17 ára gamall, hefur verið að gera góða hluti hjá unglingaliði Manchester United, en hann átti stóran þátt í því er U18 ára liðið vann enska bikarinn á dögunum.

Hann þykir með efnilegustu leikmönnum félagsins og spilaði meðal annars fyrstu tvo leiki sína fyrir aðalliðið í ensku úrvalsdeildinni undir lok tímabilsins.

Garnacho skoraði frábært aukaspyrnumark fyrir U20 ára landslið Argentínu í gær í 6-2 tapi gegn Frakklandi í Toulon-mótinu en það má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner