Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 05. júní 2022 21:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tottenham að vinna kapphlaupið um spennandi bakvörð
Djed Spence.
Djed Spence.
Mynd: Getty Images
Tottenham leiðir núna kapphlaupið um bakvörðinn Djed Spence. Það er Nothern Echo sem segir frá því.

Spence er núna mjög eftirsóttur eftir gífurlega flott tímabil með Nottingham Forest í Championship-deildinni, næst efstu deild Englands.

Einhvern veginn tókst Middlesbrough ekki að finna pláss fyrir hann í liðinu sínu og því var hann lánaður til Forest.

Þar sló hann í gegn og hjálpaði hann liðinu að vinna sér sæti í ensku úrvalsdeildinni. Á meðan komst Middlesbrough ekki einu sinni í umspilið.

Forest vill kaupa hann en Tottenham telur sig vera að vinna baráttuna um þennan efnilega bakvörð.

Það er sagt að Forest sé að skoða aðra bakverði. Issa Kabore, bakvörður Man City, gæti komið á láni ef Spence endar í Spurs.
Athugasemdir
banner
banner