Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   mán 05. júlí 2021 21:54
Brynjar Óli Ágústsson
Helgi Sig: Við misstum aldrei trúna
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Helgi Sigurðsson, þjálfari ÍBV, var sáttur með þrjú stig þrátt fyrir erfiðan leik á móti Þrótturum í Laugardalnum. Leikurinn fór 0-1 fyrir ÍBV og eina mark leiksins kom frá Felix Erni á 90. mínútu leiksins.

Lestu um leikinn: Þróttur R. 0 -  1 ÍBV

„Þetta var bara hörku leikur. Við höfum þó spilað betur en við gerðum í dag, en það var þurrt gervigrasið í dag og það var erfitt að spila á því, en það á auðvitað við bæði liðin. Þetta var oft þungt og boltinn gekk hægt,'' segir Helgi Sigurðsson

„En mér fannst við sýna enn og aftur karakter og sköpuðum nóg mikið af færum til þess að skora, en markið beið vel á eftir sér. Við misstum aldrei trúna og það kom að lokum. Þetta var bara frábær sigur og mikill karakter sigur fyrir okkur.''

„Það er margt sem fór úrskeiðis í dag, en það sem stendur eftir er karakter liðsins og menn lögðu sig 100% fram. Þeir klúðruðu víti í fyrri hálfleik og þeir hefðu svo sem geta komist yfir líka'' segir Helgi

„Það munu örugglega ekki margir muna eftir þessum leik eftir nokkrum umferðir, en við munum muna eftir þremum stigunum.''

Spurt var Helga á stöðu Gonzalo Zamorano, sem er búinn að vera lengi meiddur.

„Hann er búinn að vera meiddur í þrjár vikur. Hann er í endurhæfingu og það eru einhverjar 2 eða 3 vikur í hann.'' segir Helgi

Hægt er að horfa á allt viðtalið fyrir ofan
Athugasemdir
banner
banner