mán 05. júlí 2021 11:38
Elvar Geir Magnússon
Locatelli hyggst hafna Arsenal - Vill fara til Juventus
Manuel Locatelli.
Manuel Locatelli.
Mynd: EPA
Samkvæmt ítölskum fjölmiðlum munu forráðamenn Juventus hitta kollega sína hjá Sassuolo í vikunni til að ræða um Manuel Locatelli.

Þessi 22 ára leikmaður hefur skorað tvö mörk á EM alls staðar og Arsenal vill fá hann í sínar raðir. Sagt er að Locatelli ætli þó að hafna Arsenal því hans vilji sé að ganga í raðir Juventus.

La Gazzetta dello Sport segir að Juventus muni funda um leikmanninn í vikunni en Sassuolo er með 40 milljóna evra verðmiða á honum.

Sky Sport Italia segir að Locatelli muni að öllum líkindum verða leikmaður Juventus og vonast er til þess að samningar náist í þessari viku.
Athugasemdir
banner
banner
banner