Rúnar Alex Rúnarsson er sagður á leið til Altay Spor í Tyrklandi frá Arsenal.
Charles Watts sem fjallar um Arsenal fyrir Goal er einn af þeim sem hefur tjáð sig um þessi mögulegu skipti.
Charles Watts sem fjallar um Arsenal fyrir Goal er einn af þeim sem hefur tjáð sig um þessi mögulegu skipti.
„Alex Rúnarsson er nálægt því að yfirgefa Arsenal. Hann er í viðræðum um að ganga í raðir Altay Spor," skrifar Charles og vitnar í tyrkneskann blaðamann.
Charles skrifar að um sé að ræða annað hvort lánssamning eða hreinlega að tyrkneska félagið sé að kaupa Rúnar Alex.
Altay komst upp úr B-deildinni á liðinni leiktíð og spilar því í efstu deild á komandi leiktíð.
Rúnar Alex gekk í raðir Arsenal frá Dijon síðasta haust. Hann er 26 ára markvörður sem á að baki tíu A-landsleiki.
Alex Runarsson is close to leaving Arsenal. He's in talks over a move to Altay Spor in Turkey as reported by @egengiin. Deal still to be finalised, could be permanent. pic.twitter.com/GofMvcTsQj
— Charles Watts (@charles_watts) July 5, 2021
Athugasemdir