Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 05. september 2018 18:30
Magnús Már Einarsson
Alonso vildi brjóta sjónvarpið þegar dregið var
Mynd: Getty Images
Marcos Alonso, leikmaður Chelsea, segist næstum hafa brotið sjónvarpið sitt í reiðikasti þegar hann horfði á dráttinn í riðlakeppni Meistaradeildarinnar á dögunum.

Chelsea náði ekki sæti í Meistaradeildinni að þessu sinni og er í Evrópudeildinni þar sem liðið mætir PAOK Salonika, BATE Borisov og Vidi.

„Þegar þú sérð dráttinn í sjónvarpinu, riðlana, og liðið þitt er ekki þar þá viltu brjóta sjónvarpið," sagði Alonso.

„Ég vona að þetta sé lærdómur fyrir okkur til að berjast í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili og komast í Meistaradeildina."

„Ég tel að við höfum verðskuldað meira á síðasta tímabili og það er pirrandi að vera ekki í keppninni á þessu tímabili."

Athugasemdir
banner
banner