Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 05. september 2020 10:40
Ívan Guðjón Baldursson
Harry Kane lofsamar Greenwood: Fullkominn markaskorari
Mynd: Getty Images
Harry Kane og Mason Greenwood eru báðir í enska landsliðshópnum sem mætir Íslandi í dag.

Kane er besti sóknarmaður Englendinga og hefur 32 mörk í 45 landsleikjum. Hann lofsamar hinn efnilega Mason Greenwood, framherja Manchester United, sem er aðeins 18 ára gamall og gæti spilað sinn fyrsta A-landsleik á eftir.

„Hann er frábær. Hann getur skotið með vinstri, hægri, innanfótar og af krafti. Hann er fullkominn markaskorari sem getur skorað úr hvaða færi sem er," sagði Kane.

„Hann hefur bara verið í boltanum í stuttan tíma en hann lítur út fyrir að vera sóknarmaður í toppklassa."

Greenwood er sóknarmaður að upplagi en getur einnig spilað á hægri kanti og í holunni fyrir aftan fremsta mann. Framherjinn ungi er jafnfættur og býr yfir frábærri skottækni.
Athugasemdir
banner
banner