Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 05. september 2020 13:22
Ívan Guðjón Baldursson
Jökull Andrésson í leikmannahópi Reading í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jökull Andrésson er varamarkvörður Reading gegn Colchester í enska deildabikarnum í dag.

Jökull er aðeins 19 ára gamall og var í Aftureldingu áður en hann skipti yfir til Reading fyrir þremur árum.

Hann á fimm leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands en var ekki í leikmannahópi U21 landsliðsins sem lagði Svíþjóð að velli í gær.

Reading hefur trú á Jökli en hann endurnýjaði samning sinn við félagið í nóvember í fyrra og er samningsbundinn Championship liðinu til 2022.
Athugasemdir
banner
banner
banner