Newcastle að krækja í Jamal Lewis
Sky Sports greinir frá því að bæði Newcastle og Aston Villa vilji ólm krækja í Callum Wilson, sóknarmann Bournemouth, í næstu viku.
Bournemouth hefur hingað til hafnað öllum tilboðum í Wilson en núna er upphæðin komin yfir 20 milljónir punda og gætu hlutir byrjað að gerast.
Newcastle bauð 20 milljónir í Wilson á meðan Villa er búið að bjóða 21 milljón. Wilson vill þó frekar ganga í raðir Newcastle.
Bournemouth hefur áhuga á að fá Matt Ritchie, vinstri kantmann Newcastle, og gæti það haft áhrif á félagaskipti Wilson.
Sky greinir einnig frá því að Norwich sé búið að samþykkja 13,5 milljón punda tilboð frá Newcastle í Jamal Lewis, 22 ára vinstri bakvörð Norwich.
Athugasemdir